• 12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza
    2026/10/14
    Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt.Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd.Síðan tekur tónlistin við. Napólí gaf heiminum meðal annars 'O sole mio og Funiculì, Funiculà, auk stórstjarna á borð við Enrico Caruso. Og auðvitað kemur Diego Maradona við sögu – maðurinn sem varð miklu meira en fótboltahetja í Napólí.Við skoðum sögu napólísku pizzunnar, bragðum á sfogliatella og babà og kynnumst fallegri hefð caffè sospeso – kaffi sem greitt er fyrir ókunnugan gest.Að lokum förum við undir götur borgarinnar, þar sem aldagömul göng urðu að loftvarnabyrgjum í síðari heimsstyrjöldinni, áður en við komum aftur upp í dagsljósið til Vesúvíusar og Campi Flegrei.Napólí er borg þar sem fortíðin er aldrei langt undan – og hið óvenjulega verður einhvern veginn hversdagslegt.******Scaramanzia - HjátrúCornicello - Corno - rautt horn, verndargripurMalocchio - hið illa augaTöfraþula með il corno:https://www.facebook.com/share/r/1A757W1hYv/Pulcinella - "L'arte di arrangiarsi" listin að redda sérMynd: https://en.wikipedia.org/wiki/Pulcinella#/media/File:Pulcinella_-_stampa_ottocento.jpghttps://www.giovannicarrieri.com/it/italia/campania/napoli/fotografia/pulcinella-a-napoliSan Gennaro - verndardýrlingur NapoliCimitero delle Fontanelleslóð: https://cimiterodellefontanelle.it/en/ Sono napoletano - ég er frá NapoliTeatro San Carlo vígt árið 1737:https://www.teatrosancarlo.it/en/Canzone napoletana - napólíska sönghefðinTónleikar - Napolitanata:https://www.napulitanata.com/en/location-2/O sole mio - samið 1898. Texti Giovanni Capurro, lag Eduardo di Capua.It's now or never - Elvis PresleyFesta di PiedigrottaFuniculi, funiculá - Texti e. Peppino Turco, lag: Luigi DenzaEnrico Caruso (f. 1873) einn frægasti óperusöngvari heimsPino Daniele - Napule é:https://youtu.be/LLM7AET8Zfo?si=WlBBAqFratIIUWjsDiego Armando MaradonaSSC Napoli1986-87 - Napoli verður Ítalíumeistari í fyrsta sinn.„Voi non sapete cosa vi siete persi.“ „Þið vitið ekki hverju þið hafið misst af.“Stadio Diego Armando MaradonaSophia Loren leikkonaMassimo Troisi leikari (Il Postino)Elena Ferrante og Lena og LilaPizzaPizza Marinara1889 Umberto I konungur og Margherita drottning heimsóttu NapoliPizza MargheritaUNESCO - 2017, L'arte del pizzaiuolo napoletano Pizza a portafoglio - VeskispizzaPizza frittaPasta alla Genovese Ragú napoletanoCala la pasta, veitingastaður, Via dei Tribunali 180Sfogliatella - sætabrauð Fratelli Attanasio -bakaríBabà - gerkakaCaffé sospeso - kaffi í biðPresepe - jólajatanVia San Gregorio Armeno - jólagatanTufo - móbergPozzari - Vatnsberar'O Munaciello - litli munkurinnGalleria Borbonica:https://www.galleriaborbonica.com/en/home/home/Napoli Sotterranea:https://sotterranea.napoli.it/en San Lorenzo Maggiore:https://www.laneapolissotterrata.it/Katakombur San Gennarohttps://sangennaro-catacombs.naples-tourismtickets.com/it/VesuviusLacryma Christi - víntegund, tár KristsCampi Flegrei - Flegraísku vellirnirEyjarnar Procida, Ischia og Capri Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingurVefsíða: www.italiaheillar.is
    続きを読む 一部表示
    46 分
  • 11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus
    2026/10/07

    Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi.

    Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinni, þegar borgarbúar risu upp gegn þýska hernámsliðinu, og lítum á dekkri hliðar borgarinnar, meðal annars Camorra.

    En saga Napólí segir aðeins hálfa söguna. Til að kynnast borginni þarf líka að kynnast fólkinu.

    Við skoðum Napólíbúa sem tala með höndunum, kalla á milli svala, ræða af ástríðu og mæta lífinu með sérstökum húmor. Fjölskyldan, gatan, kaffið og samtölin fléttast saman í borg þar sem lífið virðist stöðugt vera í gangi.

    Er hægt að skilja Napólí? Kannski ekki alveg. En það er einmitt hluti af töfrunum.

    *****

    • Sírenan Parthenope úr Ódysseifskviðu Hómers
    • Grikkir - eyjan Ischia
    • Neapolis - Nýja borgin, Grikkir stofna á 6. - 5. old f.Krist
    • Palaepolis - gamla borgin
    • Spaccanapoli - "sú sem klýfur Napoli" - gata sem "sker" gömlu Napoli í tvennt.
    • 326 f. Krist - Rómverjar koma
    • Virgil - höfundur Eneasarkviðu
    • Grikkir - Rómverjar - miðaldir - Spánverjar - konungar Búrbóna
    • 11. og 12. old Normannar taka völdin á S-Ítalíu
    • 1139 fer Napoli undir stjórn Normanna
    • 1282 blóðug uppreisn á Sikiley - Sikileyski aftansöngurinn "I Vespri siciliani"
    • 1503 ná Spánverjar yfirráðum
    • 1647 uppreisn í Napoli - Masaniello fiskimaður
    • 1734 ná Búrbónar völdum
    • Konungshöllin í Caserta
    • 1737 Teatro di San Carlo opnað
    • 1861 Giuseppe Garibaldi og konungsríkið Ítalía
    • 19. og 20. old - milljónir manna yfirgefa S-Ítalíu
    • 1943 - Heimstyrjöldin síðari og Le quattro giornate di Napoli, "hinir fjórir dagar Napoli" Almenningur tók upp vopn gegn Þjóðverjum
    • Camorra mafían
    • 2006 bókin Gomorra eftir Roberto Saviano
    • Pizzo verndargjald
    • "Sono Napoletano"
    • Handahreyfingin "Ma che vuoi?" Hvað viltu eiginlega?
    • Totó (f. 1898)- einn ástsælasti gamanleikari Ítalíu
    • "Non hai mangiato niente" - Þú borðaðir ekki neitt
    • Hauskúpa í fóstur?


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    38 分
  • 10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!
    2026/09/09

    Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita áður en ferðast er með lest á Ítalíu. Lestir eru ein þægilegasta leiðin til að komast á milli stórborga eins og Rómar, Flórens, Bologna, Mílanó og Napólí, en ítalska lestarkerfið getur virst dálítið ruglingslegt í fyrstu.

    Fjallað er um helstu gerðir lesta, allt frá hraðskreiðum og þægilegum Frecciarossa-lestum til Intercity- og héraðslesta sem stoppa á fleiri stöðum og gefa ferðalanginum tækifæri til að sjá meira af hinni daglegu Ítalíu. Einnig er farið yfir hvernig best er að kaupa lestarmiða, hvenær borgar sig að bóka með fyrirvara og hver munurinn er á Trenitalia, Italo og miðasölusíðum á borð við Omio og Trainline.

    Sérstök áhersla er lögð á það sem gerist á lestarstöðinni: hvernig þú finnur rétta brautarpallinn, vagninn og sætið, hvernig brottfararskjáirnir virka og hvaða ítölsk orð er gott að þekkja. Einnig er útskýrt hvers vegna það skiptir máli að staðfesta miða í héraðslestir áður en farið er um borð.

    Farangur, matur, salerni, öryggi, tafir og lestarverkföll koma einnig við sögu, auk næturlesta og sögulegra ferðamannalesta.

    Markmiðið er að gera lestarferðalag um Ítalíu einfaldara, öruggara og skemmtilegra – svo þú getir notið ferðarinnar frá fyrstu stöð til þeirrar síðustu.

    Buon viaggio!

    ********
    Agriturismo – bændagisting

    Lestarfyrirtæki:

    Trenitalia (ríkisreknu lestirnar) – allar tegundir lesta
    www.trenitalia.com
    - Le Frecce – “Örvarnar” háhraðalestir frá Trenitalia
    - Frecciarossa – Háhraðalest frá Trenitalia
    Italo – einungis háhraðalestir
    https://www.italotreno.com/en

    Endursöluaðilar lestarmiða:

    Omio
    https://www.omio.com/

    Trainline
    https://www.thetrainline.com/

    ItaliaRail
    https://www.italiarail.com/

    Mismunandi gerðir lesta

    - Háhraðalestir

    - Intercity

    - Héraðslestir (regionale)

    - Staðbundnar lestir

    Gott að kunna:

    Prima classe – fyrsta farrými

    Seconda classe – annað farrými

    Treno / Treni – lest / lestir

    Partenze – brottfarir

    Arrivi - komur

    Biglietti – miðar

    Destinazione – lokaáfangastaður

    Orario – tími/komutími/brottfarartími

    Ritardo – Seinkun

    Binario / Binari – Brautarpallur / Brautarpallar

    Informazioni – Upplýsingar

    Firenze – Flórens

    Venezia – Feneyjar

    Viaggiatreno - Hér er hægt að sjá væntanlega brautarpalla á undan upplýsingum sem birtast á skjá brautarstöðvanna.
    www.viaggiatreno.it –

    Sottopassaggio – undirgöng

    scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða frá hinu opinbera um væntanleg verkföll

    Leit í Google: Slá inn sciopero treni og dagsetninguna. Dæmi: sciopero treni 18 marzo

    Intercity Notte: Næturlestir á vegum Trenitalia
    https://www.trenitalia.com/en/intercity-notte.html

    Treni turistici – Ferðamannalestir á vegum Trenitalia
    https://www.fstrenituristici.it/

    Treni storici: Sögulegar lestir
    https://www.fondazionefs.it/en/itineraries.html

    Buon viaggio – Góða ferð


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    53 分
  • 9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu
    2026/09/02

    Að leigja bíl á Ítalíu getur verið bæði spennandi og svolítið stressandi. Í stórborgum eins og Róm, Flórens, Mílanó og Napólí er oft mun skynsamlegra að treysta á lestir og almenningssamgöngur. En þegar ferðinni er heitið út í sveitirnar, til lítilla þorpa, vínekranna í Piemonte, fjallanna, strandbæjanna eða svæða þar sem lestir og rútur eru af skornum skammti, getur bílaleigubíllinn orðið lykillinn að allt annarri Ítalíu.

    Í þessum þætti af Ítalía heillar förum við yfir það helsta sem gott er að vita áður en sest er undir stýri. Við skoðum hvaða skjöl þarf að hafa meðferðis, kreditkort og tryggingar, hvernig best er að velja bíl og hvers vegna lítill bíll getur reynst gulls ígildi á þröngum götum ítalskra bæja.

    Síðan tekur ítalska umferðarmenningin við. Við ræðum hraðbrautirnar, vegatolla, hraðamyndavélar, hringtorg og ekki síst hin alræmdu ZTL-svæði í sögulegum miðbæjum, þar sem röng beygja getur skilað sér í sekt löngu eftir að heim er komið. Bílastæðin fá líka sitt pláss – enda eru þau nánast sérstakt listform á Ítalíu.

    Við komum við á Autogrill, fáum okkur espresso og skoðum sögu þessarar ítölsku hraðbrautastofnunar. Einnig eru gefin ráð um leiðsöguforrit, eldsneyti, afhendingu og skil á bílaleigubílnum og hvernig hægt er að forðast óvænt gjöld.

    Því að aka um Ítalíu snýst ekki eingöngu um að komast frá A til B. Frelsið felst líka í að geta beygt út af leiðinni, stoppað í óvæntu þorpi eða fundið kaffihús sem aldrei stóð til að heimsækja. Og stundum verður röng beygja einmitt að bestu minningunni úr ferðinni.

    ******

    Frecce – hraðlestir frá Trenitalia

    Codice stradale – Ítalskar umferðareglur

    Hámarkshraði á Ítalíu

    Reglurnar eru einfaldar:

    • 130 km/klst. á autostrade (hraðbrautum).
    • 110 km/klst. á tvöföldum vegum (superstrade).
    • 90 km/klst. á sveitavegum.
    • 50 km/klst. í bæjum.

    Autovelox/Tutor – Hraðamyndavélar

    Controllo Elettronico della Velocità – Rafrænt hraðaeftirlit

    ZTL - Zona a Traffico Limitato – Takmörkuð umferð (sérstakt leyfi)

    Benzina - bensín

    Gasolio – díesel

    CDW - collision damage waiver – Kaskótrygging

    rentalcover.com

    Telepass – rafræn greiðsla vegatolla

    Waze - app: Kemur sér vel fyrir hraðamyndavélar og umferðarupplýsingar í rauntíma.

    Google Maps - app

    Biglietto – miði

    Autogrill – Áningastaður við hraðbraut

    Disco orario – bílastæðisklukka

    Allora – Jæja


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    32 分
  • 8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?
    2026/08/26
    Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina. En Róm er miklu meira en frægustu kennileitin. Við röltum um Piazza Navona, Campo de’ Fiori og Piazza di Spagna, skoðum fallegar götur, almenningsgarða og verslunarhverfi og leitum að stöðum þar sem hægt er að komast aðeins frá ferðamannastraumnum. Við lítum líka inn á markaði þar sem Rómverjar sjálfir versla og fáum hugmyndir að skemmtilegum kaupum. Matarmenningin fær að sjálfsögðu sinn sess: hvenær Rómverjar borða, hvernig þekkja má gott gelato og hvaða rómversku rétti vert er að prófa, svo sem carbonara, cacio e pepe og amatriciana. Að lokum kynnumst við nokkrum óvenjulegri hliðum borgarinnar – sjónhverfingum í kirkju, götulist og jafnvel kattagriðastað. Og kannski er besta ráðið einfaldast: að leggja kortið frá sér, ganga inn í hliðargöturnar og leyfa Róm að koma sér á óvart. ****Colosseo (Colosseum)www.colosseo.itForo Romano (Forum Romanum) Miðar í Colosseo gilda í Foro Romano og PalatínhæðAltare della Patria (Vittoriano)https://vive.cultura.gov.it/it/altare-della-patriaVatíkaniðhttps://www.museivaticanitickets.com/Péturskirkjanhttps://booking.basilicasanpietro.va/en/idea/41280461/basilicaSixtínska kapellanhttps://www.museivaticanitickets.com/Pantheon hofiðhttps://direzionemuseiroma.cultura.gov.it/en/pantheon/ eða www.pantheonrome.it Circus Maximus (ókeypis)https://www.turismoroma.it/en/places/circus-maximusKirkjurSan Giovanni in Laterano https://www.basilicasangiovanni.va/en.htmlSanta Maria Maggiore – Maríukirkjan https://www.basilicasantamariamaggiore.va/it.htmlSan Paolo fuori le mura – Pálskirkjan utan múranna https://basilicasanpaolo.org/Santa Maria del Popolo https://santamariadelpopoloroma.it/Sant’Ignazio di Loyola (kirkjan sem blekkir augað)https://chiesasantignazio.it/Katakomburnarhttps://www.rome-museum.com/catacombs-of-rome.phpCaracallaböðinhttps://www.turismoroma.it/en/places/baths-caracallaCastel St. Angelohttps://castelsantangelorome.com/Gyðingahverfiðhttps://www.turismoroma.it/en/places/old-jewish-quarterVilla Borghese https://www.turismoroma.it/en/places/villa-borghese Trevi brunnurinnhttps://www.turismoroma.it/en/places/trevi-fountainGiardino degli Aranci (Appelsínugarðurinn)https://www.turismoroma.it/it/luoghi/parco-savello-o-giardino-degli-aranciSkemmtileg torgPiazza Navonahttps://www.turismoroma.it/en/places/navona-squarea del PopoloPiazza del popolohttps://www.turismoroma.it/en/places/piazza-del-popoloCampo de‘ fiori https://www.turismoroma.it/en/places/campo-de%E2%80%99-fioriPiazza di Spagna https://www.turismoroma.it/it/luoghi/piazza-di-spagnaPiazza della Madonna dei Monti https://www.turismoroma.it/en/places/piazza-madonna-dei-monti Piazza San Lorenzo í Lucina https://www.turismoroma.it/en/node/1620 Skemmtilegar götur í RómVia dei CondottiVia della ConciliazioneVia del CorsoVia dei CoronariVia Giulia Via Urbana (Monti)Via del Boschetto (Monti) Áhugaverðir markaðirhttps://www.marketsofrome.com/ Mercato Trionfale (innimarkaður) https://www.mercatotrionfale.store/enCampo de‘ Fiori – elsti markaður Rómarhttps://www.marketsofrome.com/home/campo-de-fiori-market Porta Portese – aðal flóamarkaðurinnhttps://www.marketsofrome.com/home/porta-portese-marketVia Ostiense - Notuð föt og antíkmunirhttps://www.marketsofrome.com/food-market/94-ostiense-marketVia Sannio - Föt og fylgihlutirhttps://www.marketsofrome.com/piazza-mazzini-xmas-market/sannio Matur til að smakkaBucatini all’Amatriciana Cacio e Pepe Pizza Bianca Fiori di zucca Pasta alla carbonara Pizza alla Romana Gelato – ísDæmi um vín:Frascati hvítvín og Cesanese del Piglio rauðvínSikileyska bakaríiðAntica Focacceria San Francesco, Piazza della Toretta 38/40 (skammt frá Piazza di San Lorenzo í Lucina).Götulist í Rómhttps://streetartmap.com/rome/ Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingurVefsíða: www.italiaheillar.is
    続きを読む 一部表示
    43 分
  • 7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð
    2026/08/19

    Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina, meðal annars með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl, og hvaða kostur hentar eftir staðsetningu gististaðar og fjölda ferðafélaga. Þú þarft sérstaklega að passa þig á reglum um lestarmiða sem geta leitt til sekta ef ekki er rétt staðið að málum.

    Við skoðum ólík hverfi Rómar og kosti þeirra, meðal annars Testaccio, Monti, Trastevere og Prati. Mikilvægt er að þú veljir gistingu með tilliti til samgangna, til dæmis nálægt Metro-línum A eða B.

    Við ræðum um vasaþjófa, algengar aðferðir þeirra og hvernig þú getur varið símann þinn, veski og töskur, sérstaklega í mannþröng, neðanjarðarlestum, strætisvögnum og við vinsæla ferðamannastaði eins og Trevi-gosbrunninn og Vatíkanið.

    Þú færð að heyra um almenningssamgöngur, Metro, strætisvagna og leigubíla, auk annarra leiða til að kynnast borginni. Þar koma við sögu Hop-on Hop-off vagnar, gönguferðir og golfbílaferðir, sem geta verið skemmtileg og þægileg leið um þröngar götur miðborgarinnar.

    Að lokum færðu einfalt en mikilvægt Rómarráð: taktu með þér góða vatnsflösku. Um miðborgina eru hundruð nasoni, drykkjarvatnsbrunna þar sem hægt er að fylla á hana ókeypis.

    ******

    Flugvellir:
    Leonardo da Vinci (Fiumicino) og Ciampino


    Frá flugvelli og inn í borg

    Leonardo Express hraðlestin fer til Roma Termini, aðallestarstöð Rómar
    https://www.trenitalia.com/en/connections/leonardo-express.html

    FL1 lestin fer til Roma Tiburtina
    https://www.trenitalia.com/

    SITbus
    https://www.sitbusshuttle.com/

    Terravision bus
    https://www.terravision.eu/airport_transfer/bus-fiumicino-airport-rome/

    KiBag Roma Termini – Farangursgeymsla Roma Termini
    https://www.kibag.it/en/deposito-bagagli-roma/deposito-bagagli-roma-termini/

    Radical Storage - Farangursgeymsla
    https://radicalstorage.com/

    Nokkur hverfi (rioni) í Róm:
    Testaccio
    Monti
    Trastevere
    Prati
    Esquilino

    ZTL - Zona a traffico limitato – Takmörkuð umferð – sérstök leyfi. Svæðið heitir Zona 30
    Í Róm.

    Leigubílaöpp:
    FreeNow
    itTaxi
    Uber

    App fyrir miða í almenningssamgöngur

    MooneyGo

    Metro í Róm – neðanjarðarlestir

    Lína A og B
    Lína C

    Golfbílaferðir - margir möguleikar
    Dæmi: https://mybesttour.com/

    Rómarrölt – Ingólfur Níels Árnason
    https://romarrolt.com/

    Hljóðleiðsögn um Róm frá ferðafrömuðinum Rick Steves
    www.Ricksteves.com


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    38 分
  • 6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg
    2026/08/12

    Í þessum fyrsta þætti af þremur um Róm er farið í svolítið óhefðbundið ferðalag um sögu borgarinnar, allt frá goðsögninni um Rómúlus og Remus til Rómar nútímans.

    Frá því að vera upphaflega einungis fáeinir kofar stækkaði Róm og varð miðja eins voldugasta heimsveldis sögunna. Borgin hnignaði eftir fall þess en reis aftur til vegs og virðingar á endurreisnartímanum. Í dag búa nærri þrjár milljónir manna innan um tæplega þrjú þúsund ára sögu.

    Við kynnumst borginni þar sem Colosseum, Forum Romanum, Vatíkanið og Trevi-gosbrunnurinn renna saman við iðandi mannlíf, umferð, kaffibari og rómverska matarmenningu. Róm er hávær, óreiðukennd, heillandi og full af mótsögnum – borg sem lofar ekki skilvirkni en á óþrjótandi sögur.

    Einnig er litið á ýmsa sérkennilega siði Rómverja til forna og þeir bornir saman við nútíma-Ítali. Þrátt fyrir tvö þúsund ára bil virðast ýmis einkenni lifa góðu lífi: félagslyndi, ástríðufull samskipti, sterkar matarhefðir og mikilvægi hins daglega mannlífs á torgum og kaffibörum.

    ******
    Pecunia non olet – Peningar lykta ekki


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    17 分
  • 5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?
    2026/08/05

    Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik.

    Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið (EHIC) hjá Sjúkratryggingum Íslands, skoða þær tryggingar sem fylgja kreditkortinu þínu og mögulega fá þér góða ferðatryggingu.

    Fyrsti viðkomustaður fyrir minni háttar veikindi ætti oftast að vera apótek (Farmacia). Ítalskir lyfjafræðingar geta ráðlagt um lausasölulyf og vísað áfram til læknis ef þörf krefur. Sýklalyf færðu aðeins gegn lyfseðli.

    Við alvarleg veikindi eða slys skaltu fara á bráðamóttöku (Pronto Soccorso) eða hringja í neyðarnúmerið 112. Fyrir vandamál sem eru ekki alvarleg er hægt að hafa samband við læknavaktina, Guardia Medica, í síma 116117, eða nýta sér einkareknar læknastofur og fjarheilbrigðisþjónustu. Slík þjónusta er yfirleitt fljótlegri, en kostnaður fæst ekki alltaf endurgreiddur.

    ******

    Evrópska sjúktratryggingakortið og staðfesting á sjúkratryggingu
    Vefsíða: https://island.is/s/sjukratryggingar

    SSN – Servizio Sanitario Nazionale – Opinber heilbrigðisþjónusta á Ítalíu

    Imodium – lausasölulyf gegn niðurgangi

    Pronto Soccorso – bráðamóttaka í opinbera kerfinu

    Símanúmer sem gildir í mörgum héruðum til að fá samband við Guardia Medica:

    116117 (0039 116117)

    Guardia Medica – Læknavakt

    Guardia Medica turistica – læknavakt fyrir ferðamenn

    Farmacia – apótek

    Farmacia di turno – vakthafandi apótek

    Fjarheilbrigðisþjónusta:
    Doctorsinitaly.com og pyllola.com

    Parla inglese, per favore? – Talið þér ensku?


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    20 分