『10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!』のカバーアート

10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!

10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!

無料で聴く

ポッドキャストの詳細を見る

Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita áður en ferðast er með lest á Ítalíu. Lestir eru ein þægilegasta leiðin til að komast á milli stórborga eins og Rómar, Flórens, Bologna, Mílanó og Napólí, en ítalska lestarkerfið getur virst dálítið ruglingslegt í fyrstu.

Fjallað er um helstu gerðir lesta, allt frá hraðskreiðum og þægilegum Frecciarossa-lestum til Intercity- og héraðslesta sem stoppa á fleiri stöðum og gefa ferðalanginum tækifæri til að sjá meira af hinni daglegu Ítalíu. Einnig er farið yfir hvernig best er að kaupa lestarmiða, hvenær borgar sig að bóka með fyrirvara og hver munurinn er á Trenitalia, Italo og miðasölusíðum á borð við Omio og Trainline.

Sérstök áhersla er lögð á það sem gerist á lestarstöðinni: hvernig þú finnur rétta brautarpallinn, vagninn og sætið, hvernig brottfararskjáirnir virka og hvaða ítölsk orð er gott að þekkja. Einnig er útskýrt hvers vegna það skiptir máli að staðfesta miða í héraðslestir áður en farið er um borð.

Farangur, matur, salerni, öryggi, tafir og lestarverkföll koma einnig við sögu, auk næturlesta og sögulegra ferðamannalesta.

Markmiðið er að gera lestarferðalag um Ítalíu einfaldara, öruggara og skemmtilegra – svo þú getir notið ferðarinnar frá fyrstu stöð til þeirrar síðustu.

Buon viaggio!

********
Agriturismo – bændagisting

Lestarfyrirtæki:

Trenitalia (ríkisreknu lestirnar) – allar tegundir lesta
www.trenitalia.com
- Le Frecce – “Örvarnar” háhraðalestir frá Trenitalia
- Frecciarossa – Háhraðalest frá Trenitalia
Italo – einungis háhraðalestir
https://www.italotreno.com/en

Endursöluaðilar lestarmiða:

Omio
https://www.omio.com/

Trainline
https://www.thetrainline.com/

ItaliaRail
https://www.italiarail.com/

Mismunandi gerðir lesta

- Háhraðalestir

- Intercity

- Héraðslestir (regionale)

- Staðbundnar lestir

Gott að kunna:

Prima classe – fyrsta farrými

Seconda classe – annað farrými

Treno / Treni – lest / lestir

Partenze – brottfarir

Arrivi - komur

Biglietti – miðar

Destinazione – lokaáfangastaður

Orario – tími/komutími/brottfarartími

Ritardo – Seinkun

Binario / Binari – Brautarpallur / Brautarpallar

Informazioni – Upplýsingar

Firenze – Flórens

Venezia – Feneyjar

Viaggiatreno - Hér er hægt að sjá væntanlega brautarpalla á undan upplýsingum sem birtast á skjá brautarstöðvanna.
www.viaggiatreno.it –

Sottopassaggio – undirgöng

scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða frá hinu opinbera um væntanleg verkföll

Leit í Google: Slá inn sciopero treni og dagsetninguna. Dæmi: sciopero treni 18 marzo

Intercity Notte: Næturlestir á vegum Trenitalia
https://www.trenitalia.com/en/intercity-notte.html

Treni turistici – Ferðamannalestir á vegum Trenitalia
https://www.fstrenituristici.it/

Treni storici: Sögulegar lestir
https://www.fondazionefs.it/en/itineraries.html

Buon viaggio – Góða ferð


Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is

adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
まだレビューはありません