『Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu』のカバーアート

Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

著者: Margrét Gunnarsdóttir
無料で聴く

【Amazonプライム会員限定】今ならプレミアムプランが4か月 月額99円。

10月19日まで。※適用条件あり

Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum.

Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram.

Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu.


Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira.

Njótið – ciao ciao.

© 2026 Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
旅行記・解説 社会科学
エピソード
  • 12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza
    2026/10/14
    Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt.Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd.Síðan tekur tónlistin við. Napólí gaf heiminum meðal annars 'O sole mio og Funiculì, Funiculà, auk stórstjarna á borð við Enrico Caruso. Og auðvitað kemur Diego Maradona við sögu – maðurinn sem varð miklu meira en fótboltahetja í Napólí.Við skoðum sögu napólísku pizzunnar, bragðum á sfogliatella og babà og kynnumst fallegri hefð caffè sospeso – kaffi sem greitt er fyrir ókunnugan gest.Að lokum förum við undir götur borgarinnar, þar sem aldagömul göng urðu að loftvarnabyrgjum í síðari heimsstyrjöldinni, áður en við komum aftur upp í dagsljósið til Vesúvíusar og Campi Flegrei.Napólí er borg þar sem fortíðin er aldrei langt undan – og hið óvenjulega verður einhvern veginn hversdagslegt.******Scaramanzia - HjátrúCornicello - Corno - rautt horn, verndargripurMalocchio - hið illa augaTöfraþula með il corno:https://www.facebook.com/share/r/1A757W1hYv/Pulcinella - "L'arte di arrangiarsi" listin að redda sérMynd: https://en.wikipedia.org/wiki/Pulcinella#/media/File:Pulcinella_-_stampa_ottocento.jpghttps://www.giovannicarrieri.com/it/italia/campania/napoli/fotografia/pulcinella-a-napoliSan Gennaro - verndardýrlingur NapoliCimitero delle Fontanelleslóð: https://cimiterodellefontanelle.it/en/ Sono napoletano - ég er frá NapoliTeatro San Carlo vígt árið 1737:https://www.teatrosancarlo.it/en/Canzone napoletana - napólíska sönghefðinTónleikar - Napolitanata:https://www.napulitanata.com/en/location-2/O sole mio - samið 1898. Texti Giovanni Capurro, lag Eduardo di Capua.It's now or never - Elvis PresleyFesta di PiedigrottaFuniculi, funiculá - Texti e. Peppino Turco, lag: Luigi DenzaEnrico Caruso (f. 1873) einn frægasti óperusöngvari heimsPino Daniele - Napule é:https://youtu.be/LLM7AET8Zfo?si=WlBBAqFratIIUWjsDiego Armando MaradonaSSC Napoli1986-87 - Napoli verður Ítalíumeistari í fyrsta sinn.„Voi non sapete cosa vi siete persi.“ „Þið vitið ekki hverju þið hafið misst af.“Stadio Diego Armando MaradonaSophia Loren leikkonaMassimo Troisi leikari (Il Postino)Elena Ferrante og Lena og LilaPizzaPizza Marinara1889 Umberto I konungur og Margherita drottning heimsóttu NapoliPizza MargheritaUNESCO - 2017, L'arte del pizzaiuolo napoletano Pizza a portafoglio - VeskispizzaPizza frittaPasta alla Genovese Ragú napoletanoCala la pasta, veitingastaður, Via dei Tribunali 180Sfogliatella - sætabrauð Fratelli Attanasio -bakaríBabà - gerkakaCaffé sospeso - kaffi í biðPresepe - jólajatanVia San Gregorio Armeno - jólagatanTufo - móbergPozzari - Vatnsberar'O Munaciello - litli munkurinnGalleria Borbonica:https://www.galleriaborbonica.com/en/home/home/Napoli Sotterranea:https://sotterranea.napoli.it/en San Lorenzo Maggiore:https://www.laneapolissotterrata.it/Katakombur San Gennarohttps://sangennaro-catacombs.naples-tourismtickets.com/it/VesuviusLacryma Christi - víntegund, tár KristsCampi Flegrei - Flegraísku vellirnirEyjarnar Procida, Ischia og Capri Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingurVefsíða: www.italiaheillar.is
    続きを読む 一部表示
    46 分
  • 11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus
    2026/10/07

    Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi.

    Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinni, þegar borgarbúar risu upp gegn þýska hernámsliðinu, og lítum á dekkri hliðar borgarinnar, meðal annars Camorra.

    En saga Napólí segir aðeins hálfa söguna. Til að kynnast borginni þarf líka að kynnast fólkinu.

    Við skoðum Napólíbúa sem tala með höndunum, kalla á milli svala, ræða af ástríðu og mæta lífinu með sérstökum húmor. Fjölskyldan, gatan, kaffið og samtölin fléttast saman í borg þar sem lífið virðist stöðugt vera í gangi.

    Er hægt að skilja Napólí? Kannski ekki alveg. En það er einmitt hluti af töfrunum.

    *****

    • Sírenan Parthenope úr Ódysseifskviðu Hómers
    • Grikkir - eyjan Ischia
    • Neapolis - Nýja borgin, Grikkir stofna á 6. - 5. old f.Krist
    • Palaepolis - gamla borgin
    • Spaccanapoli - "sú sem klýfur Napoli" - gata sem "sker" gömlu Napoli í tvennt.
    • 326 f. Krist - Rómverjar koma
    • Virgil - höfundur Eneasarkviðu
    • Grikkir - Rómverjar - miðaldir - Spánverjar - konungar Búrbóna
    • 11. og 12. old Normannar taka völdin á S-Ítalíu
    • 1139 fer Napoli undir stjórn Normanna
    • 1282 blóðug uppreisn á Sikiley - Sikileyski aftansöngurinn "I Vespri siciliani"
    • 1503 ná Spánverjar yfirráðum
    • 1647 uppreisn í Napoli - Masaniello fiskimaður
    • 1734 ná Búrbónar völdum
    • Konungshöllin í Caserta
    • 1737 Teatro di San Carlo opnað
    • 1861 Giuseppe Garibaldi og konungsríkið Ítalía
    • 19. og 20. old - milljónir manna yfirgefa S-Ítalíu
    • 1943 - Heimstyrjöldin síðari og Le quattro giornate di Napoli, "hinir fjórir dagar Napoli" Almenningur tók upp vopn gegn Þjóðverjum
    • Camorra mafían
    • 2006 bókin Gomorra eftir Roberto Saviano
    • Pizzo verndargjald
    • "Sono Napoletano"
    • Handahreyfingin "Ma che vuoi?" Hvað viltu eiginlega?
    • Totó (f. 1898)- einn ástsælasti gamanleikari Ítalíu
    • "Non hai mangiato niente" - Þú borðaðir ekki neitt
    • Hauskúpa í fóstur?


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    38 分
  • 10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!
    2026/09/09

    Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita áður en ferðast er með lest á Ítalíu. Lestir eru ein þægilegasta leiðin til að komast á milli stórborga eins og Rómar, Flórens, Bologna, Mílanó og Napólí, en ítalska lestarkerfið getur virst dálítið ruglingslegt í fyrstu.

    Fjallað er um helstu gerðir lesta, allt frá hraðskreiðum og þægilegum Frecciarossa-lestum til Intercity- og héraðslesta sem stoppa á fleiri stöðum og gefa ferðalanginum tækifæri til að sjá meira af hinni daglegu Ítalíu. Einnig er farið yfir hvernig best er að kaupa lestarmiða, hvenær borgar sig að bóka með fyrirvara og hver munurinn er á Trenitalia, Italo og miðasölusíðum á borð við Omio og Trainline.

    Sérstök áhersla er lögð á það sem gerist á lestarstöðinni: hvernig þú finnur rétta brautarpallinn, vagninn og sætið, hvernig brottfararskjáirnir virka og hvaða ítölsk orð er gott að þekkja. Einnig er útskýrt hvers vegna það skiptir máli að staðfesta miða í héraðslestir áður en farið er um borð.

    Farangur, matur, salerni, öryggi, tafir og lestarverkföll koma einnig við sögu, auk næturlesta og sögulegra ferðamannalesta.

    Markmiðið er að gera lestarferðalag um Ítalíu einfaldara, öruggara og skemmtilegra – svo þú getir notið ferðarinnar frá fyrstu stöð til þeirrar síðustu.

    Buon viaggio!

    ********
    Agriturismo – bændagisting

    Lestarfyrirtæki:

    Trenitalia (ríkisreknu lestirnar) – allar tegundir lesta
    www.trenitalia.com
    - Le Frecce – “Örvarnar” háhraðalestir frá Trenitalia
    - Frecciarossa – Háhraðalest frá Trenitalia
    Italo – einungis háhraðalestir
    https://www.italotreno.com/en

    Endursöluaðilar lestarmiða:

    Omio
    https://www.omio.com/

    Trainline
    https://www.thetrainline.com/

    ItaliaRail
    https://www.italiarail.com/

    Mismunandi gerðir lesta

    - Háhraðalestir

    - Intercity

    - Héraðslestir (regionale)

    - Staðbundnar lestir

    Gott að kunna:

    Prima classe – fyrsta farrými

    Seconda classe – annað farrými

    Treno / Treni – lest / lestir

    Partenze – brottfarir

    Arrivi - komur

    Biglietti – miðar

    Destinazione – lokaáfangastaður

    Orario – tími/komutími/brottfarartími

    Ritardo – Seinkun

    Binario / Binari – Brautarpallur / Brautarpallar

    Informazioni – Upplýsingar

    Firenze – Flórens

    Venezia – Feneyjar

    Viaggiatreno - Hér er hægt að sjá væntanlega brautarpalla á undan upplýsingum sem birtast á skjá brautarstöðvanna.
    www.viaggiatreno.it –

    Sottopassaggio – undirgöng

    scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða frá hinu opinbera um væntanleg verkföll

    Leit í Google: Slá inn sciopero treni og dagsetninguna. Dæmi: sciopero treni 18 marzo

    Intercity Notte: Næturlestir á vegum Trenitalia
    https://www.trenitalia.com/en/intercity-notte.html

    Treni turistici – Ferðamannalestir á vegum Trenitalia
    https://www.fstrenituristici.it/

    Treni storici: Sögulegar lestir
    https://www.fondazionefs.it/en/itineraries.html

    Buon viaggio – Góða ferð


    Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
    Vefsíða: www.italiaheillar.is

    続きを読む 一部表示
    53 分
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
まだレビューはありません