11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus
カートのアイテムが多すぎます
カートに追加できませんでした。
ウィッシュリストに追加できませんでした。
ほしい物リストの削除に失敗しました。
ポッドキャストのフォローに失敗しました
ポッドキャストのフォロー解除に失敗しました
-
ナレーター:
-
著者:
Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi.
Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinni, þegar borgarbúar risu upp gegn þýska hernámsliðinu, og lítum á dekkri hliðar borgarinnar, meðal annars Camorra.
En saga Napólí segir aðeins hálfa söguna. Til að kynnast borginni þarf líka að kynnast fólkinu.
Við skoðum Napólíbúa sem tala með höndunum, kalla á milli svala, ræða af ástríðu og mæta lífinu með sérstökum húmor. Fjölskyldan, gatan, kaffið og samtölin fléttast saman í borg þar sem lífið virðist stöðugt vera í gangi.
Er hægt að skilja Napólí? Kannski ekki alveg. En það er einmitt hluti af töfrunum.
*****
- Sírenan Parthenope úr Ódysseifskviðu Hómers
- Grikkir - eyjan Ischia
- Neapolis - Nýja borgin, Grikkir stofna á 6. - 5. old f.Krist
- Palaepolis - gamla borgin
- Spaccanapoli - "sú sem klýfur Napoli" - gata sem "sker" gömlu Napoli í tvennt.
- 326 f. Krist - Rómverjar koma
- Virgil - höfundur Eneasarkviðu
- Grikkir - Rómverjar - miðaldir - Spánverjar - konungar Búrbóna
- 11. og 12. old Normannar taka völdin á S-Ítalíu
- 1139 fer Napoli undir stjórn Normanna
- 1282 blóðug uppreisn á Sikiley - Sikileyski aftansöngurinn "I Vespri siciliani"
- 1503 ná Spánverjar yfirráðum
- 1647 uppreisn í Napoli - Masaniello fiskimaður
- 1734 ná Búrbónar völdum
- Konungshöllin í Caserta
- 1737 Teatro di San Carlo opnað
- 1861 Giuseppe Garibaldi og konungsríkið Ítalía
- 19. og 20. old - milljónir manna yfirgefa S-Ítalíu
- 1943 - Heimstyrjöldin síðari og Le quattro giornate di Napoli, "hinir fjórir dagar Napoli" Almenningur tók upp vopn gegn Þjóðverjum
- Camorra mafían
- 2006 bókin Gomorra eftir Roberto Saviano
- Pizzo verndargjald
- "Sono Napoletano"
- Handahreyfingin "Ma che vuoi?" Hvað viltu eiginlega?
- Totó (f. 1898)- einn ástsælasti gamanleikari Ítalíu
- "Non hai mangiato niente" - Þú borðaðir ekki neitt
- Hauskúpa í fóstur?
Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is