エピソード

  • Íslandsmeistararnir!
    2026/10/12

    Álfrún og Linda fara yfir þrjú keppnishlaup síðustu viku ásamt æfingaálaginu í saunu. Nýkrýndur Íslandsmeistari fer yfir hlaupið í smáatriðum og hvernig svengdin hellist yfir fólk eftir maraþon.

    続きを読む 一部表示
    46 分
  • Gucci gellan í Köben
    2026/10/01

    Í þættinum fara Álfrún og Linda yfir hálfmaraþonið í Kaupmannahöfn, verðlaun fyrir ekki pb og Valencia æfingablokk sem er að hefjast. Létt körfuboltahorn í lokin

    続きを読む 一部表示
    41 分
  • Samkeppni í flokkinn!
    2026/09/14

    Linda og Álfrún heyra í Fríðu Hrund sem er einmitt líka fædd 1982 og hefur náð eftirtektarverðum árangri í flokknum 40-44 ára á liðnu hlaupasumri. Þær fara líka yfir æfingar liðinnar viku, frábært Hjartadagshlaup og stutta innsýn inn í hálft maraþon í Porto.

    続きを読む 一部表示
    47 分
  • Gríðarleg eftirspurn!
    2026/09/07

    Vegna gríðarlegrar eftirspurnar opna Linda og Álfrún hlaupahaustið með einum léttum upphitunarþætti fyrir það sem koma skal hlaupahaustið 2026. Báðar ætla þær að gera aðra atlögu að Valencia heilu maraþoni í desember og munu leyfa hlustendum að fylgjast með æfingum og undirbúningi.

    続きを読む 一部表示
    41 分
  • Stein Olav í Samfó!
    2026/05/12

    Á lokasprettinum í fyrir borgarstjórnarkosningar fengu Linda og Álfrún til sín Stein Olav sem er í 5. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Hann er venjulegur hlaupari, langar að hlaupa maraþon, klára samgöngusáttmálann og fá fleira fagfólk inn í skólana. Hann er norskur og flutti til Íslands árið 2018.

    続きを読む 一部表示
    59 分
  • Fritz í framboði!
    2026/05/06

    Linda og Álfrún halda áfram að fá til sín frambjóðendur á hlaupum. Að þessu sinni er það Bjarni Fritzson sem er í 8. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Hann er allt í senn rithöfundur, þjálfari, hlaupari, hlaupahaldari Græna Gímalds hlaupsins og frambjóðandi. Í spjallinu var farið um víðan völl í bókstaflegum skilningi!

    続きを読む 一部表示
    1 時間 14 分
  • Bakgarður og borgarstjórn
    2026/04/29

    Linda og Álfrún eru ekki bara að detta í hlaupagírinn fyrir sumarið heldur eru sveitarstjórnarkosningar á næsta leyti og þær ætla að fá til sín góða gesti, frambjóðendur úr nokkrum framboðum sem eru líka venjulegir hlauparar. Í þættinum ræða þær við Söndru Hlín Guðmundsdóttur sem er í 6. sæti lista Viðreisnar í Reykjavík.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 8 分
  • Afrek afrekanna
    2026/04/01

    Í þættinum fá Linda og Álfrún til sín frábæran viðmælanda sem þær hafa beðið eftir að spjalla við. Steinunn Lilja Pétursdóttir segir frá hlaupaferli sínum, hvernig hún æfir undir leiðsögn Fjallahlaupaþjálfunar, mikilvægi næringar og kolvetnainntöku og síðast en ekki síst ótrúlegu afreki hennar þegar hún hljóp Laugaveginn undir fimm tímum sumarið 2025.

    続きを読む 一部表示
    57 分