エピソード

  • Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta
    2026/09/24

    Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst.


    Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladóttir, Karen Hlín Halldórsdóttir og Sölvi Krisinn Jónsson.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    50 分
  • Vopnafjörður: Lífið við höfnina, fótbolti og sýn sveitarstjóra á framtíðina
    2026/09/17

    Víðsvegar heldur enn til á Vopnafirði, þar sem við kynnumst staðnum og veltum fyrir okkur hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu þar að finna.


    Viðmælendur: Kristinn Ágústsson, Sara Líf Magnúsdóttir, Íris Edda Jónsdóttir, áhöfnin á Indriða Kristins BA 751 og Heiðar Kristbergsson.


    Í þættinum er spilað brot þætti Berglindar Häsler „Frá Vopnafirði til vesturheims“ frá 2009. Þar ræddi hún við Ágústu Þorkelsdóttur.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    51 分
  • Vopnafjörður: Daglegt líf íbúa og spjall um tækifærin í framtíðinni
    2026/09/10

    Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.


    Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    49 分
  • Flakkað um Hrísey
    2026/06/10

    Í dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi.


    Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir.


    Þetta var síðasti þáttur Víðsvegar, í bili. Þátturinn fer nú í sumarfrí en snýr aftur í september og þá byrjar flakk okkar aftur. Og ef þið eruð með ábendingar um skemmtilega viðmælendur, sögur eða staði má alltaf senda línu á netfang þáttarins, vidsvegar@ruv.is.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    52 分
  • Litið yfir farinn veg
    2026/06/03

    Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    50 分
  • Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum
    2026/05/27

    Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum.


    Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðlaun sambandsins. Einnig er rætt við framvkæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem stendur á tímamótum.


    Viðmælendur: Sigurgeir B. Hreinsson, Ástþór Örn Árnason, Svana Ósk Rúnarsdóttir og Ingvi Stefánsson.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    53 分
  • Flakkað um Ólafsfjörð
    2026/05/20

    Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði.


    Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er að gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými.


    Viðmælendur: Þröstur Ólafsson, Björk Óladóttir, Kristín Karlsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Alina Streza, Gauti Már Rúnarsson og Ida Semey.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    50 分
  • Menning og ferðaþjónusta á Akureyri
    2026/05/13

    Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.


    Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.


    Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sveinsdóttir, Haraldur Þór Egilsson og Jóhannes Þór Skúlason.


    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    48 分