エピソード

  • Hryggsúlan III.
    2026/07/06

    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.


    Við sögu kemur orðasifjafræði, skartgripir úr hryggjaliðum, stólbök og ýmislegt fleira. Viðmælendur eru Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuður, Jón G. Friðjónsson, prófessor emeritus og Jósep Ó. Blöndal, læknir


    Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    43 分
  • Hryggsúlan II.
    2026/06/29

    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.


    Í þessum þætti snúum við okkur að lasleika sem hrjáir marga einhvern tímann á lífsleiðinni: bakverkir, bakvandamál. Viðmælendur eru Þorvaldur Ingvarsson læknir, Edda Elísabet Magnúsdóttir, líffræðingur og Jósep Ó. Blöndal, læknir


    Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.



    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    43 分
  • Hryggsúlan I.
    2026/06/22

    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólks sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.


    Í fyrsta þætti skoðum við líffærafræði og þróunarsögu hryggsúlunnar. Hvernig fór maðurinn að því að reisa sig upp? Rætt er við Þorvald Ingvarsson bæklunarskurðlækni, Sigurjón Jóhannsson skipulagsfræðing, Þórhall Auð Helgason tölvunarfræðinema og Eddu Elísabetu Magnúsdóttur, doktor í líffræði.


    Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.



    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    41 分
  • Skammtafræði IV.
    2026/06/15

    Stærðfræðijöfnur og samspil trúar og vísinda er efniviður þáttarins. Hugleiðingar um fyrirbæri og tungumál stærðfræðinnar leiða okkur nefnilega með óvæntum hætti inn í tengsl trúar og vísinda, sem og jú andstæður og aðskilnað þessara tveggja heima.


    „Grundvallarspurningin er mögulega; Getum við afsannað ákveðnar trúarlegar kenningar með vísindalegri þekkingu? Þetta er eitthvað sem ég hef rannsakað sérstaklega í samhengi við heimsmyndarfræðina,“ segir danski sagnfræðingurinn Helge Kragh en hann er sérfróður um sögu trúarbragða og vísinda og hefur skrifað aragrúa af bókum um efnið. Rætt er við hann í þættinum sem og Birgi Ásgeirsson, Mars M. Proppé, Rögnvald Konráð Helgason og Kristian Joas.


    Við sögu kemur tungumál stærðfræðinnar, trú hinna ýmsu vísindamanna, heimsfastinn Λ, afstæðiskenning Einsteins, George Lemaitre og ýmislegt fleira


    Þáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    51 分
  • Skammtafræði III.
    2026/06/08

    „Hver spurning sem skammtafræðin svarar leiðir einfaldlega til annarrar spurningar því við köfum stanslaust dýpra og dýpra og dýpra og dýpra,“ sagði Rob Sutherland, sagnfræðingur við Niels Bohr Institute, í síðasta þætti. Haldið er áfram að kafa ofan í fjarlægan, og þó afar nálægan, og hulinn heim skammtafræðinnar í þætti dagsins.


    Við sögu kemur köttur Schrödingers, superposition, vangaveltur um orsök og afleiðingu, atómskraftsjár, skammtafræðilegar tilraunir í Háskóla Íslands, skammtatölvur, smættarhyggja og ýmislegt annað.


    Rætt er við Rögnvald Konráð Helgason, Viðar Guðmundsson, Kristján Leósson, Lárus Thorlacius, Unnar Arnalds.


    Þáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    55 分
  • Skammtafræði II.
    2026/06/01

    Við höldum áfram að fikra okkur í gegnum heim hins smáa, heim skammtafræðinnar sem hefur leitt af sér fleiri uppfinningar í nútímasamfélagi en aðrar kenningar. Skammtafræðin á sér yfir hundrað ára sögu. Í þessum þætti víkjum við aftur í söguna og skoðum hvenær og hvernig þetta byrjaði allt saman.


    Upprunann má rekja til borgar sem Íslendingar þekkja vel, höfuðborgar fyrrum nýlenduherra okkar: Kaupmannahafnar. „Það er mjög áhugavert og spennandi að vera hér í vöggu skammtafræðinnar,“ segir Rögnvaldur Konráð Helgason sem lærir öreindafræði í háskóla borgarinnar


    Meining bregður sér til Kaupmannahafnar, heimsækir upphafsstað skammtafræðinnar og ræðir við eðlisfræðinga nútímans. Við sögu kemur fjölskyldualbúm Niels Bohrs, kjarnalíkan Rutherfords, gamalt erindi séra Sigurðar Einarssonar, Gullfoss, Magnús Magnússon, Bohr-líkanið, Fuji-fjall og ýmislegt fleira.


    Rætt er við Rögnvald Konráð Helgason, Kristian Joas, Viðar Guðmundsson og Robert Sutherland.


    Þáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.



    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    52 分
  • Skammtafræði I.
    2026/05/25

    „Það sem er miklu merkilegra, og þú ættir frekar að spyrja, er hvernig stendur á því að við getum yfirhöfuð skilið þetta? Það er ekkert fyrir fram gefið að heimurinn sé skiljanlegur,“ segir einn viðmælandinn, en flókinn heimur skammtafræðinnar er til skoðunar í næstu fjórum þáttum.


    „Skammtafræðin er afskaplega hagnýt. Margt í okkar daglega lífi er hægt að rekja beint til þessa aukna skilnings 20. aldar á eðli efnisins. Ég leyfi mér að fullyrða að það er engin önnur hugmyndafræði sem hefur skilað mannkyninu öðru eins,“ sagði Lárus Thorlacius, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, og nefndi því til stuðnings flatskjái, tæknina sem notuð er til að búa til farsíma og raunar flest sem lýtur að tölvum. Þrátt fyrir að skammtafræðin liggi að baki flestöllu í nútímaheiminum, og þótt nú sé liðin heil öld frá fæðingu hennar er hún enn sveipuð „undarlegum hjúpi leyndardóms og dulúðar,“’ eins og eðlisfræðingurinn Carlo Rovelli orðar það.


    Skammtafræði er sú grein eðlisfræðinnar sem snýr að því smæsta. Ferðalag þessara þátta er því fullt af leyndardómsfullum hliðum sem storka gildandi hugmyndum okkar um heiminn. Í þessum þætti er m.a. spurt: Hvað er það allra smæsta í heiminum? Hversu smátt er það og hvernig lítur það út? „Þegar þú ert komin niður í svona stuttar lengdir þá er ekki nóg með að þú getir ekki gert greinarmun á ögn og bylgju heldur eru ögn og svarthol nokkurn veginn það sama,“ sagði Lárus Thorlacius


    Rætt er við Unnar Arnalds, Birgi Ásgeirsson, Mars. M Proppé, Lárus Thorlacius og Viðar Guðmundsson.


    Þáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    51 分
  • Mölturiddarar
    2026/05/18

    „Þetta er elsta riddararegla í heimi,“ segir Hreinn Líndal, einn íslensku Mölturiddaranna en þeir eru átta talsins, sjö karlmenn og ein kona. Þau tilheyra hinni kaþólsku Möltureglu, sem er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum að því leyti að hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númeraplötur og mynt. Möltureglan er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra hjá Evrópusambandinu og áheyrnarfulltrúa í Sameinuðu þjóðunum. Það er gjarnan talað um hana sem hálffullvalda þjóðréttaraðila enda ríki án íbúa og eiginlegs landsvæðis.


    Í þættinum er fræðst um Mölturiddarana, sem og athyglisverðan feril Hreins. Hann er óperusöngvari, rak um sinn tískuhúsið H. Líndal og sá um að klæða Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu árin hennar í forsetaembætti í samstarfi við ítalska tískurisa eins og Valentino.


    Við sögu kemur Ronald Reagan, dýrlingurinn Padre Pio, mannúðaraðstoð, kraftaverkin í Lourdes, systur Trumps, Mary Higgins Clark og ýmislegt fleira.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 1 分