エピソード

  • Fyrir fótboltaleik
    2026/06/19
    Hvað þarf til að halda stærsta fótboltaleik sumarsins? Við mætum á Víkingsvöll og verjum tíma með sjálfboðaliðum Víkings á meðan þeir undirbúa toppslag við erkifjendurna í Knattspyrnufélagi Reykjavíkur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    51 分
  • Bjór
    2026/06/12

    Einhvern tímann á síðasta áratug varð breyting á því hvernig við drekkum bjór. Handverksbrugghús opnuðu um land allt sem brugguðu flókna, krefjandi, stundum skrítna bjóra. Svo varð önnur breyting.


    Hvað gerðist?


    Í dag heimsækjum við handverksbrugghús og ræðum við bruggmeistara og bjórsagnfræðing og köfum ofan í bjór- og drykkjumenningu.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    58 分
  • Tilraunastöðin
    2026/06/05
    Sumarexem, sýklalyfjaónæmi, smitsjúkdómar í fiskeldum. Í dag heimsækjum við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og kynnum okkur rannsóknirnar sem fara þar fram.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    57 分
  • Veiruheimur
    2026/05/29
    „Þetta er veiruheimur sem við búum í, ekki öfugt,“ segir Zarko Urosevic, náttúrufræðingur sem starfar við veirurannsóknir á Landspítala. Í dag fræðumst við um veirur og komumst að því hvort veirur geti verið góðar, hvaða áhrif Covid hafði á veirurannsóknir og hvort við séum tilbúin undir næsta veirufaraldur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    53 分
  • Allra meina bót
    2026/05/22
    Ættu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir fjölmargir viðburðir þar sem útskrifarnemar verja og kynna lokaverkefnin sín, og við mætum á einn þeirra til að læra meira um samband listar og samfélags.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    55 分
  • Þar sem sólin skín ekki
    2026/05/09
    Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    56 分
  • Labbið
    2026/05/04
    Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    55 分
  • Kokteilar og barmenning
    2026/04/24
    Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    58 分