『Hold』のカバーアート

Hold

Hold

著者: RÚV Hlaðvörp
無料で聴く

Einu sinni þótti fallegt að vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því að velja óheilsusamlegt líferni og ættu að vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu.

Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir.


Ber þá feitu fólki þá skylda til að fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til að draga úr offituvandanum eða auka hann? Og hvaða afleiðingar hafa þessar lausnir til langframa? Er alltaf betra að vera mjó?


Brynhildur Björnsdóttir er 56 ára kona sem hefur verið feit alla ævi. Hún veltir þessum spurningum fyrir sér í þremur útvarpsþáttum ásamt ýmsum sérfræðingum og fólki með reynslu af því að grennast með hjálp lyfja og aðgerða.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

RÚV Hlaðvörp
世界 社会科学
エピソード
  • 1. þáttur: Vandræðabarn frá byrjun
    2024/06/07

    Haustið 1986 var íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason boðaður á leynilegan fund. Það var upphafið að mikilli háskaför hinum megin á hnettinum. En hver er þessi Birgir?


    Í þessum þætti fáum við að kynnast bakgrunni hans og hvað gerði hann að þeim manni sem hann er nú.


    Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

    Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    39 分
  • 2. þáttur: Framtíðin ráðin
    2024/06/15

    Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða.


    Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson og Jónas Hall.


    Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

    Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    41 分
  • Eldflaugaförin 3. þáttur: Baráttan við Bakkus
    2024/06/22

    Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú barátta tekur toll sem enginn vill þurfa að greiða.

    Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingum í alþjóðamálum.


    Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

    Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    40 分
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
まだレビューはありません