『Hið yfirnáttúrulega』のカバーアート

Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

著者: Ghost Network®
無料で聴く

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.Ghost Network® 政治・政府
エピソード
  • 100. Andleg árás – Spiritual Attack
    2026/05/27

    Andleg árás kemur fyrir flesta hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Það er mikilvægt að þekkja merkin og ná að breyta þessari neiðkvæðu orku áður en það nær tökum á þér.

    Þegar fólk byrjar að vakna andlega, styrkja innsæið sitt og tengjast hærri orku er oft sagt að það geti orðið næmara fyrir neikvæðum áhrifum sem reyna að skapa ótta, efa og orkuleysi.

    Andleg árás getur byrjað sem neikvæðar hugsanir, sjálfsefi, kvíði eða tilfinning eins og allt fari á versta veg. Sumir upplifa martraðir, orkuleisi eða að þeir missi tengingu við eigin kraft og ljós. Í andlegum kenningum er talað um að markmiðið sé að halda manneskju fasti í lágri tíðni svo hún nái ekki að vaxa andlega eða sjá eigin styrk.

    Margir trúa því að því meira ljós sem einstaklingur ber í sér, því meiri andleg átök geti hann upplifað. Þess vegna leggja margir áherslu á að vernda orkuna sína með hugleiðslu, bænum, orkubreinsun og því að forðast neikvæð áhrif. Einnig er talað um mikilvægi þess að hlusta á innsæið sitt og styrkja tenginguna við sjálfan sig og jákvæða orku.

    Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? Komdu í áksrift:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mentioned in this episode:

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Komdu í áskrift

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    続きを読む 一部表示
    1 時間 14 分
  • 99. Fyrrilífs upplifun Dagný
    2026/05/25

    Í þessum þætti segir Dagný okkur frá sinni mögnuðu lífsreynslu eftir fyrrilífs dáleiðslu og heilun hjá hinni mögnuðu Vigdísi. Það er ótrúlegt að heyra það sem hún upplifði í þessum tíma og hvað það hjálpaði henni mikið!

    Selma horfði á og ekki er það sýðri upplifun að vera vitni af svona fyrrilífs dáleiðslu og heilun. Það er magnað hvað sálin man og getur tekið með sér allskonar úr fyrrilífum inn í þetta líf sem við lifum núna og oft erum við að burðast með hluti sem við getum losnað við.

    Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift!

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    続きを読む 一部表示
    12 分
  • 98. Ufo sightings í Hafnarfirði
    2026/05/20

    Selma var í göngutúr í Hafnarfirði um helgina og varð hún og sunor hennar vitni að mjög undarlegum fljúgandi furðurhlut. Á himninum birtist hlutur sem hafði fyrst kassalaga form, en á nokkrum sekúntum áður en hún gat byrjað að taka upp video þá breytti þetta um form og varð hringur. Hreyfingar voru óvenjulegar og erfitt var að bera þær saman við hefðbundnar flugvélar, þyrlur eða dróna. Á köflum leit út fyrir að hluturinn afmyndaðist eða flökti, eins og hann væri ekki með fasta lögun.

    Í fyrstu var hún alveg viss um að þetta væri bara gasblaðra eða ruslapoki, en heilinn á okkur á það til að reyna að finna rökrétta útskýringu og efast um það sem maður er að sjá.

    Hvað sem þetta var á himninum þá var þetta fljúgandi furðuhlutur, mögulega ufo eða bara eitthvað sem á sér eðlilega skýringu eins og ruslapoki eða blaðra. En ef þið skoðið videoið og myndirnar þá hafa nákvæmlega svona furðuhlutir verið að birtast út um allan heim! Hvað haldið þið að þetta geti verið?

    Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? komdu í áskrift!

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mentioned in this episode:

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Komdu í áskrift

    続きを読む 一部表示
    57 分
adbl_web_anon_alc_button_suppression_c
まだレビューはありません