エピソード

  • S1E12 - Hvenær er endurhæfingin búin?!
    2026/07/30

    Lokaþáttur fyrstu seríu gott fólk! Ég fer yfir allskonar skemmtileg atriði í þessum þætti og vildi óska þess að þið væruð bara öll með mér í stúdíóinu. Hlakka til að heyra frá ykkur. Þangað til næst, þú ert ekki aumingi. 😎

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

    続きを読む 一部表示
    1 時間 15 分
  • S1E11 - "Ef ég get hjálpað fólki í gegnum erfiðleika, þá er ég ALL IN" - Ellen Helga
    2026/07/21

    Ellen Helga vinkona mín komst í gegnum brjóstakrabbamein og uppskar reynslu sem er auðvitað ljúfsár, en fyrir vikið getur hún sett sig í spor fólks og barna sem eru á erfiðum stað í lífinu, ekki síst þar sem hún starfar sem hjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins. Ellen er fáránlega góð í að hvetja, með fallega sýn á lífið og eitt mesta bein í nefinu sem ég hef kynnst. Sannkallaður demantur sem vert er að hlusta á ❤️

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

    続きを読む 一部表示
    1 時間 19 分
  • S1E10 - "Fjárhagslega fullorðin" - Björn Berg fjármálaráðgjafi
    2026/07/14

    Þegar lífið tekur óvænta u-beygju fylgir oft fjárhagslegt óöryggi.

    Mörg upplifa skömm, ótta og vanmátt gagnvart eigin fjármálum og mér fannst tilvalið að fá Björn í þáttinn, vegna þess að hann talar um fjármálahlið lífsins á mannlegan og yfirvegaðan hátt. Hvernig getum við undirbúið okkur betur? Hvaða mistök eru algeng? Hvernig getum við rætt um peninga af meiri ró og minni skömm?

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

    続きを読む 一部表示
    1 時間 15 分
  • S1E9 - Taugakerfið mitt er komið með nóg af mér
    2026/07/07

    Einn extra hrár hér á ferð... endurhæfingin gefur og endurhæfingin tekur (:

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

    続きを読む 一部表示
    59 分
  • S1E8 - "Kvenheilsa í forgang" - Thera Studio
    2026/06/30

    Systurnar Hera og Thelma eru að stofna heilsusamfélagið Thera Studio með áherslu á kvenheilsu. JÁ TAKK. Þær eru meðal annars að flytja inn fyrsta meðgöngu- sjúkraþjálfunarbekk landsins sem allar mæður fyrr og síðar hafa beðið eftir. Við áttum virkilega gott spjall um kvenheilsu, mæður, mikilvægi þess að við mætum okkur á þeim stað sem við erum, og svo margt annað!

    Hér er Thera Studio á instagram og heimasíðan þeirra er therastudio.is

    Þátturinn er í boði Nordaid, Lyfju, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

    続きを読む 一部表示
    1 時間 5 分
  • S1E7 - Hver á að setja þessi mörk? ER ÞAÐ ÉG?
    2026/06/23

    Ræðum aðeins bókina When the body says No eftir Gabor Maté, námskeið sem Virk sendi mig á þar sem ég stórgræddi mikilvæga innsýn í lífið, Kaleo á Þingvöllum og smá vanmat hjá skvís.

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

    続きを読む 一部表示
    59 分
  • S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur
    2026/06/09

    Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera?

    Meira en maður myndi halda.

    Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu.

    Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það sem gerist þegar lífið tekur óvænta beygju. Hvernig hefur sjálfsvirðið áhrif á samböndin okkar? Af hverju er svona erfitt að taka á móti hjálp þegar við þurfum mest á henni að halda? Og hvað gerist í ástarsambandi þegar annar aðilinn neyðist til að hægja á sér, fara í endurhæfingu eða sleppa tökunum á þeirri útgáfu af sér sem hann þekkti áður? Þessi þáttur er í boði Lyfju, Nordaid sprey vítamínanna, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

    続きを読む 一部表示
    1 時間 17 分
  • S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks
    2026/06/02

    Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika.

    Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanum að losa um uppsafnaða spennu, streitu og áföll, og Svava deilir sinni innsýn í tengsl áfalla, taugakerfisins og bataferlisins, og hvernig hægt er að finna leiðina aftur til sín með mildi, öryggi og sjálfsást.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 14 分