『Álögin á Vatnsenda 3.þáttur』のカバーアート

Álögin á Vatnsenda 3.þáttur

Álögin á Vatnsenda 3.þáttur

無料で聴く

ポッドキャストの詳細を見る

Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.


Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í miðri byggð í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér.


Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.


Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

Hljóðblöndun: Kormákur Marðarson

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
まだレビューはありません