Audible会員は対象作品が聴き放題、2か月無料体験キャンペーン中
-
Rauðu skórnir
- ナレーター: Jóhann Sigurðarson
- 再生時間: 15 分
商品を追加できませんでした
カートに追加できませんでした。
ウィッシュリストに追加できませんでした。
ほしい物リストの削除に失敗しました。
ポッドキャストのフォローに失敗しました
ポッドキャストのフォロー解除に失敗しました
聴き放題対象外タイトルです。Audible会員登録で、非会員価格の30%OFFで購入できます。
あらすじ・解説
Stúlkan Katrín er sárafátæk, en á dánardegi móður hennar gefur gamla skóarakonan henni rauða skó. Katrínu þykja skórnir undurfagrir og ber þá við útför móður sinnar. Í kjölfarið verður hún fyrir þeirri lukku að gömul sterkefnuð kona tekur hana að sér. Þeirrar fyrsta verk verður að brenna rauðu skóna og fata Katrínu uppá nýtt.
Hún lifir nú sældarlífi undir verndarvæng gömlu konunnar um nokkra hríð. Þegar kemur að því að kaupa á hana fermingarfötin fara þær meðal annars til skósmiðsins. Katrín heillast þar af eldrauðum skóm, sem minna hana á bernskuskóna - en gamla konan tekur því fjarri. Þannig vill þó til að henni er farin að daprast sjón, svo Katrín leikur á hana, en það hefur alvarlegar afleiðingar.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Rauðu skórnir" eru saga um hvernig hégómi og undirferli getur farið með fólk. Stúlkan Katrín tekur sannarlega út fyrir syndir sínar, en iðrunin gæti þó fært henni frið. rn