エピソード

  • Mikki og Filip á Mika
    2026/07/02

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, brugðu undir sig betri fætinum og fóru á hið margrómaða Mika Restaurant í Reykholti. Þar hittum við fyrir Michał Jerzy Józefik eða Mikka og Filip Jan Józefik. Mikki stofnaði Mika ásamt konu sinni Bożenu Józefik og nú er sonur þeirra kominn á fullt í reksturinn. Þau hjónin fluttu frá Póllandi og langaði bara ekki aftur til Póllands og í þættinum segir Mikki frá Póllandi, flutningnum, vinnunni og fjölskyldunni. Áhættan var tekin með að stofna Mika sem nú er öflugt veitingahús með fjölda starfsfólks og hefur fest sig vel í sessi í Uppsveitunum. Filip er meistari í matreiðslu og framreiðslu og er með pabba sínum á fullu í eldhúsinu og töfrar þar fram frábæra rétti.
    Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 6 分
  • Ásta Stefánsdóttir - sveitarstjóri Bláskógabyggðar
    2026/06/24

    Ásta Stefánsdóttir kom í heimsókn og hafði frá mörgu að segja. Sem ung stúlka stundaði hún frekar óhefbundnar veiðar með ömmu sinni, draumurinn um að verða kennari. vinnan hjá sýslumanni og síðar Árborg og eins kíkti dómarinn Ásta í heimsókn. Bláskógabyggð á hins vegar hug hennar allan síðasliðin ár, uppbyggingin, framkvæmdirnar og framtíðin. Það var virkilega gaman að hafa Ástu í spjalli.

    Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify og eins á heimasíðu þáttarins.

    続きを読む 一部表示
    47 分
  • Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir
    2026/06/17

    Nú duttu Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, heldur betur í lukkupottinn. Til okkar kom Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir og hafði heldur betur frá mörgu að segja. Uppvöxtur í Reykjavík, ferðalög, flutningur í Gnúpverjahrepp, hestamennska, reiðskólinn, búskapurinn og ég veit ekki hvað og hvað.

    Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify og eins á heimasíðu þáttarins

    続きを読む 一部表示
    1 時間 3 分
  • Hrunamannahreppur 1150 ára og Gullspretturinn
    2026/06/10

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góða gesti í þáttinn. Fyrst kom Esther Guðjónsdóttir, fyrir hönd afmælisnefndar og kynnti fyrir okkur dagskrá afmælishátíðarinnar sem verður mjög viðamikil. Allir hvattir til að mæta. Eins kom Gríma Guðmundsdóttir og kynnti Gullsprettinn sem er utanvegahlaup í kring um Laugarvatn. Tveir spennandi viðburðir og tveir skemmtilegir viðmælendur.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 6 分
  • Bessi Hressi - Bergsveinn Theódórsson
    2026/06/03

    Uppsveitakastið brá undir sig betri fætinum og heimsótti athafnamanninn og skemmtikraftinn Bessa á Flúðum. Bessi hefur heldur betur fundið sitt hlutverk í lífinu en það er að sjá til þess að allir geti skemmt sér og notið lífsins. Það eru ófáar skemmtanirnar sem hann hefur boðið uppá með það að markmiði að fólk komi saman og njóti samveru án þess að það kosti. Þegar þessi þáttur er að koma út er Bessi að opna Grundina að nýju en einhvern veginn finnur hann tíma til þess ásamt öllu sem hann er að gera. Sjálfur segir hann að þetta takist allt með hjálp fjölskyldunnar og góðra vina. Heyrn er sögu ríkari.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 12 分
  • Gestur frá Hæli
    2026/05/27

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góðan Gest í þáttinn. Þessi Gestur ræddi um íþróttastarf í Uppsveitum og var sannarlega ekki komið að tómum kofanum hjá honum. Hvort sem rætt var um frjálsar, golf, boltaíþróttir allt var í kollinum á okkar Gesti. Eðlilega komst ekki allt að á stuttum tíma en heyrn er sögu ríkari.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 16 分
  • Tveir á tali um kosningar
    2026/05/20

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tala um nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar. Um leið og Uppsveitakastið óskar sigurvegurum kosninganna til hamingju með úrslitin er öllum framboðum þökkuð drengileg barátta og góð kynni í þeim þáttum sem teknir voru upp í aðdraganda kosninganna. Í þessum þætti ræddum við úrslit kosninganna í hverju sveitarfélagi fyrir sig og bárum saman við síðustu kosningar. Eins ræddum við félagslífið framundan næstu daga.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 1 分
  • Kappræður framboða í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
    2026/05/13

    Þann 12. maí 2026 hittust E-listi og L-listi í kappræðum í Árnesi. Uppsveitakastið var á staðnum og tók kappræðurnar upp og afraksturinn birtist hér. Umræður voru líflegar en spurningarnar voru sendar inn með Slido kerfinu.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 48 分