エピソード

  • #5 „Of feit fyrir mig“
    2026/02/20

    Í þessum loka‏þætti Svellsins mæta grínistarnir Sveppi og Bolli Már Bjarnason og þ‏jóðfræðingurinn Anna Margrét Hrólfsdóttir í hljóðverið og ræða grín. Má gera grín að öllu eða er sumt „off limits“? Húmor hefur lengi verið notaður til að auðvelda umræðu um erfið og alvarleg málefni. Hins vegar getur húmor líka verið leið til að forðast að takast á við alvarleg málefni eða hreinlega notað í þeim tilgangi að niðurlægja.

    Í þættinum ræða þau gott grín, misheppnað grín, úrelt grín, klefamenningu, piss og ….. hárígræðslur.

    Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi

    続きを読む 一部表示
    1 時間 6 分
  • #4 „Slá í gegn“
    2026/02/13

    Birna ræðir við Magnús Harðarson, forstjóra Nasdaq Iceland, og Þráin Frey Vigfússon, kokk og eiganda veitingastaðarins ÓX, um „skill building“ og hvernig maður nær árangri í lífinu. Hvað er árangur? Erum við kannski enn að skilgreina árangur samkvæmt löngu úreltum gildum? Á hugmyndin um „hús, barn og bíl“ enn þá‏ við þegar sífellt færri hafa kost á að komast í eigið húsnæði og fleiri og fleiri kjósa að eignast ekki börn? Telst það árangur að lifa hamingjusömu lífi eða mælist hann aðeins í auði og völdum? Hvaða hæfileika er mikilvægt að ungt fólk ‏þrói með sér ‏ef það ætlar að ná árangri á vinnumarkaði?

    Þetta og meira til verður krufið til mergjar í ‏þætti dagsins.

    Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi

    続きを読む 一部表示
    47 分
  • #3 „Geta pabbar ekki grátið“
    2026/02/06

    Arnar Dan Kristjánsson leikari, Axel Ingi Árnason tónskáld, og Áslaug Kristjánsdóttir sálfræðingur mæta í hljóðverið til Birnu og Baldurs til að ræða alla anga föðurhlutverksins. Sagt er að allt breytist við ‏það að verða foreldri; sambandið við ‏eigin foreldra, sambandið við makann og oft neyðist fólk til ‏þess að horfast í augu við eigin bresti samhliða barnauppeldinu.

    Í ‏þættinum eru andstæðurnar í kringum föðurhlutverkið ræddar;‏ hefðbundnar væntingar samfélagsins til feðra og kröfur nútímans um aukna mýkt og þátttöku. En ‏þau ræða líka rómantík, kynlíf, fótbolta og keppnisskap og velta fyrir sér hvort foreldrar nútímans séu mögulega alltof duglegir.

    Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi

    続きを読む 一部表示
    1 時間 16 分
  • #2 „Gerum okkar besta“
    2026/01/30

    Kempurnar‏ Gunnar Jarl Jónsson, Kári Garðarsson og Sigrún Agatha Árnadóttir mæta í settið til Birnu og Baldurs og fjalla um mál málanna: íþróttir! Margir karlmenn og drengir líta á þjálfara sína sem fyrirmyndir í lífinu. Íþróttir hafa líka verið nefndar sem góður grunnur fyrir börn til að læra samvinnu og samstöðu á jafningjagrundvelli. En ‏þegar takmarkið er alltaf sigur, hvað verður þá undir í staðinn?

    Má s‎ýna mýkt á vellinum? Hvað einkennir góðan leikmann? Hvað í ósköpunum er 80/20 reglan? Öllum þessum spurningum verður svarað í þættinum.

    Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi

    続きを読む 一部表示
    1 時間 9 分
  • #1 „Hjálpaðu mér upp“
    2026/01/22

    Í þessum fyrsta ‏þætti Svellsins reima Ragnar Jón Humi Ragnarsson grunnskólakennari, Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands, og Ellen Jacqueline Calmon, verkefnastjóri, á sig skautana og rýna í áskoranirnar sem ungir drengir standa frammi fyrir í dag.

    Í þættinum ræða þau stafræna umhverfið sem börn og ungir drengir lifa og hrærast í, tilfinningar, skaðlega áhrifavalda og jákvæðar og neikvæðar hliðar netsins.

    1 時間 7 分