『Sannar Íslenskar Draugasögur』のカバーアート

Sannar Íslenskar Draugasögur

Sannar Íslenskar Draugasögur

著者: Ghost Network®
無料で聴く

このコンテンツについて

Sannar Íslenskar Draugasögur er podcast þar sem við hjónin förum yfir aðsendar draugasögur sem hafa borist okkur frá Íslendingum. Þáttastjórnendur eru Katrín Bjarkadóttir og Stefán John Stefánsson, sem einnig halda úti hlaðvörpunum Draugasögur Podcast og Mystík Podcast. Sannar Íslenskar Draugasögur eru núna áskriftarþættir en hér á opnum veitum finnið þið 21 opinn þátt ásamt áskriftarprufum. Hafir þú áhuga á að hlusta á fleiri sögur skaltu endilega skoða áskriftina okkar á patreon.com/sannarislenskar - en þar getur þú prófað áskrift FRÍTT í 7 daga! Við bjóðum einnig uppá áskriftarleið inná Spotify. Skrifaðu Sannar Íslenskar Draugsögur Áskrift í leitargluggann og skráðu þig þar.... Ef að þú lumar á draugasögu sem þú vilt að við tökum fyrir í komandi þáttu máttu endilega senda okkur hana á sannar@draugasogur.com Sannar Íslenskar Draugsögur er framleitt af Ghost Network.Copyright 2025 Ghost Network® ノンフィクション犯罪 世界 社会科学
エピソード
  • 50. Þáttur
    2025/05/04

    Þið eruð að fara að hlusta á þátt númer 50 af Sönnum Íslenskum Draugasögum!

    Við værum ekki hér ef það væri ekki fyrir ykkur! Takk fyrir að senda inn sögur, takk fyrir að hlusta og takk takk takk til allra áskrifenda og styðja þannig við podcastið okkar ♥️♥️♥️

    Eins og alltaf við við hvetja ÞIG kæri hlustandi að senda inn þína sögu á sannar@draugasogur.com svo að við getum haldið áfram að gefa út þætti.

    Á bakvið allar sögurnar sem við höfum sagt hingað til er alvöru manneskja sem raunverulega upplifði það sem hún er að segja hér. Og það sem er svo fallegt í þessu samfélagi sem við erum búin að búa til hér saman er að við dæmum ekki hvort annað. Við trúum hvort öðru, við berum virðingu fyrir hvort öðru og við höfum gaman að því að bera saman bækur okkar 🙂

    Sögurnar í dag koma frá FJÓRUM einstaklingum og þær eru skuggalegar!

    👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉR

    Haldið áfram að senda okkur frásagnir á sannar@draugasogur.com 📧

    SAGA 1: Ömmur eru bestar

    (Sendandi: nafnleynd)

    ,,Svo ég segi við ömmu í algjörum fíflagangi "ef bíllinn verður ekki til friðs á leiðinni, viltu þá stoppa það af að ég komist af stað á honum" og viti menn, bíllinn neitar að fara í gang alveg sama hvað ég reyndi..."SAGA 2: Árekstur


    (Sendandi: Stella)

    ,,Ég var nýbyrjuð í vinnunni. Það var myrkur úti en ljós frá veginum. Ég var að bíða eftir einum starfsmann enþá úti í bíl þar sem ég var ekki komin með lykla. Þá sé ég allt í einu mann ganga frá bænum í áttina til mín..."
    SAGA 3: Íbúðin sem hún bjó í


    (Sendandi: nafnleynd)

    ,,Um hádegisbil er bankað hjá mér og er það Palli sonur konunnar sem ég leigði íbúðina af. Hann tjáði mér það að móðir hans hefði látist í kringum miðnætti kvöldið áður. Ég man hvað mér kólnaði við að heyra þetta..."


    SAGA 4: Heltekinn af hræðslu


    (Sendandi:nafnleynd)

    ,,Ég var alveg að sofna en allt i einu heyrði eg hurðina niðri opnast og fann strax á mér að þetta væri ekki pabbi, þrátt fyrir það að ég var uppi í rúmi á efri hæðinni þá heyrði eg þetta svo skýrt og hátt..."



    Við viljum þakka höfundum dagsins kærlega fyrir að senda okkur sögurnar sínar, leyfa okkur að segja þær og öðrum að hlusta ♥️


    Vilt þú að við tökum fyrir þína sögu í komandi þáttum?

    Sendu okkur þá línu á sannar@draugasogur.comrábæru samstarfsfélagar okkar eru:

    Happy Hydrate

    HELL ICE COFFEE

    Ghostbox.is

    Leanbody


    Haldið áfram að vera dugleg að senda okkur sögur á sannar@draugasogur.com 📧

    続きを読む 一部表示
    46 分
  • 51. Þáttur
    2025/05/04
    Komið þið sæl, þið eruð að fara að hlusta á þátt númer 51 af Sönnum Íslenskum Draugasögum! 😁

    Sögur dagsins eru virkilega góðar, og eins og alltaf þá viljum við hvetja ykkur hlustendur til þess að senda ykkar sögur á sannar@draugasogur.com.


    👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉR

    SAGA 1: Vegbúinn

    (sendandi: Inga)

    ,,Við lögðum af stað á föstudegi og ætluðum að vera yfir helgina fram á mánudag, því þetta voru margir aðilar. Og á leið minni sé ég konu standa við vegkant, ég sá að systir mín sá ekki þessa konu og vissi strax að hún væri ekki meðal lifanda..."SAGA 2: Poltergeist

    (sendandi: Magga)

    ,,Ég er með lítinn spegi úr mósaik sem ég bjó til í skólanum á yngri árum og hann er staðsettur á hillu fyrir ofan klósettið. Þar sem ég sat inn í stofu þá heyri ég allt í einu skell inná baði, mér dauðbrá og fer inn á bað og sé þá..."


    SAGA 3: 10 mínútur yfir 6

    (sendandi: Aðalheiður Tómasdóttir)

    ,,Nokkrum mínútum seinna heyrir hún í mér inn í svefnherbergi. Mamma kom inn í herbergi til mín og þá sat ég upprétt í rúminu öskrandi en það sem var dálítið ógnvekjandi var að ég var ennþá sofandi..."


    SAGA 4: Ekki fara inn til þeirra

    (sendandi: Snædís María)

    ,,Ég öskra í símann, hundurinn truflast út í horni og ég tryllist af hræðslu og eina sem ég kem upp er börnin mamma, börnin þannig að ég tek á rás og ætla hlaupa inn til þeirra til að athuga hvort þau væru ekki í lagi en mamma öskrar á mig EKKI FARA INN TIL ÞEIRRA!..."


    Þá er komið að lokum hjá ykkur í dag og við viljum þakka höfundum dagsins kærlega fyrir að leyfa okkur að segja sögurnar þeirra og leyfa ykkur að hlusta.


    Endilega sendu okkur þína sögu á sannar@draugasogur.com og við tökum hana fyrir í komandi þáttum! Við viljum þakka höfundum dagsins kærlega fyrir að senda okkur sögurnar sínar, leyfa okkur að segja þær og öðrum að hlusta ♥️


    Okkar frábæru samstarfsfélagar okkar eru:

    Happy Hydrate

    HELL ICE COFFEE

    Ghostbox.is

    Leanbody


    Haldið áfram að vera dugleg að senda okkur sögur á sannar@draugasogur.com 📧

    続きを読む 一部表示
    41 分
  • 52. Þáttur
    2025/05/04
    Komið þið sæl kæru áskrifendur og verið velkomin í þátt númer 52 af Sönnum Íslenskum Draugasögum!

    Ef að þú situr á sögu sem þig langar til þess að deila með okkur, endilega sendu okkur línu á sannar@draugasogur.com og við tökum hana fyrir í komandi þáttum!

    Njótið vel og eigið yndislega viku!

    👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉR

    SAGA 1: Draugasögur úr Kópavogi

    (sendandi: nafnleynd)

    ,,Í stuttu máli er Þinghóll einn af þingstöðum sem var í Gullbringusýslu í ‘‘gamla daga‘‘. Ásamt því að vera þingstaður þá var þetta einnig aftökustaður og fólk því tekið af lífi og grafið jafnvel þarna í kring, eða eins og gert var á þessum tíma ‘dysjað‘. en dys er orð yfir gröf, þar sem grafið var hálfan meter niður í jörðina og svo hlaðið yfir með grjóti eftir að líkið var sett ofan í dysina"


    SAGA 2: Hótelherbergi á Suðurlandi

    (sendandi: nafnleynd)

    ,,Þegar við vorum komin þangað og búin að tékka okkur inn í herbergið fann ég eitthvað á mér. Eins og eitthvað væri að fylgjast með mér inní herberginu, en svo spáði ég ekki meira í því. Um kvöldið fórum við í veitingasalinn á hótelinu og höfðum það kósý og fengum okkur að borða síðan ákváðum við að fara snemma að sofa þetta kvöld..."


    SAGA 3: Konan við rúmið

    (sendandi: Helga)

    ,,Ég vaknaði um miðja nótt og sá konu standa beint hliðina á rúminu mín megin og ég hélt að þetta væri mamma mín. Konan var með stutt krullað hár og frekar lágvaxin, nákvæmlega eins og mamma mín var á þessum tíma. Ég reyndi að tala við hana..."


    SAGA 4: Óvæntur gestur

    (sendandi: Mjöll)

    ,,En þegar ég kem inní eldhús situr þar gömul kona sem ég veit að ég á að þekkja en ég kem henni ekki fyrir mig. Hún heilsar mér en ég fer að velta því fyrir mér hvernig hún komst inní íbúðina afþví að ég var ein heima og mamma enn í vinnunni...."


    Við viljum þakka höfundum dagsins kærlega fyrir að senda okkur sögurnar sínar, leyfa okkur að segja þær og öðrum að hlusta ♥️


    Okkar frábæru samstarfsfélagar okkar eru:

    Happy Hydrate

    HELL ICE COFFEE

    Ghostbox.is

    Leanbody

    続きを読む 一部表示
    36 分

Sannar Íslenskar Draugasögurに寄せられたリスナーの声

カスタマーレビュー:以下のタブを選択することで、他のサイトのレビューをご覧になれます。