『Læsi』のカバーアート

Læsi

Læsi

著者: RÚV Hlaðvörp
無料で聴く

概要

Læsi er safnvarp þáttaraða Rásar 1 um menntamál. Í þáttaröðum Læsis er rætt við fjölbreyttan hóp fólks sem kemur að skóla- og fræðslumálum á Íslandi. Fólk sem leggur sitt af mörkum til að styðja við fjölbreytta flóru nemenda í skólum landsins, og að sjálfsögðu líka nemendurnir sjálfir.


Þáttaröðin Læsi er framleidd af Rás 1.

Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.

Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

RÚV Hlaðvörp
政治・政府 政治学
エピソード
  • 7. Virði íslensks stúdentsprófs
    2025/11/30
    Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársælsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Sólveig Hannesdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    43 分
  • 6. Við erum alls konar
    2025/11/23
    Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardóttir, Gunnlaugur Magnússon, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Kristín Þóra Möller, Magnús Þorkelsson, Sigríður Anna Ólafsdóttir og Þóra Þórðardóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    43 分
  • 5. Kennaramenntun og faggreinar
    2025/11/16
    Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    43 分
まだレビューはありません