エピソード

  • #23 - Riftið, Grefillinn o.fl. með gestum
    2022/07/30

    Spjallað við Arnþór Gústavsson um Cycling Westfjords og Riftið. Einnig kemur Andri Már í heimsókn og segir okkur frá Greflinum sem fer fram 20. ágúst. 

    続きを読む 一部表示
    54 分
  • #22 - Keppendur í Riftinu, landsliðsmálin og besta dagleið aldarinnar
    2022/07/14

    Ellefta dagleið í Tour de France er líklega einhver sú albesta sem hjólreiðaáhugamenn hafa fengið að fylgjast með á þessari öld og jafnvel í lengri tíma. Hjólafréttir fara aðeins yfir stöðuna nú þegar keppnin er hálfnuð. Þá er staðan tekin á Riftinu, en búast má við yfir þúsund erlendum hjólurum til landsins vegna hennar í næstu viku. Að lokum ræðum við um landsliðsmálin sem eru heitt málefni að vanda. Erum við að senda á rétt mót?

    続きを読む 一部表示
    44 分
  • #21 - Tour de France upphitun, uppgjör eftir Íslandsmótið og Westfjords way challenge
    2022/06/29

    Tour de France byrjar nú á föstudaginn. Hverjum þarf að fylgjast með, við hverju á að búast, hvernig lítur brautin út og hverjir enda í hvaða treyjum? Eiga Roglic og Vingegaard séns í Pogacar og af hverju fékk Cavendish ekki að koma með í ár til að reyna að brjóta metið hans Merckx. Þetta og miklu meira í þættinum í dag + uppgjör eftir Íslandsmótið á Mývatni.

    続きを読む 一部表示
    45 分
  • #20 - Decode við það að klára RAAM 2022
    2022/06/24

    Þegar aðeins 240 km (af 4800) eru eftir af RAAM 2022 heyrðum við í Viðari Braga Þorsteinssyni, einum liðsmanna Decode XY, og heyrðum hvernig keppnin hefði gengið. Reyndar hafði þá nýlega verið keyrt á einn liðsmann Decode, en áverkar sem betur fer ekki mjög alvarlegir. Viðar fer yfir það fyrirkomulag sem liðið notast við, hvað hafi komið á óvart og ber setup Decode við Beamer liðið sem var fyrsta 8-manna liðið í ár á nýju meti.

    続きを読む 一部表示
    14 分
  • #19 - Við hverju má búast á Íslandsmótunum?
    2022/06/21

    Íslandsmótin í tímatöku og götuhjólreiðum fara fram í vikunni fyrir norðan. Við förum aðeins yfir stöðuna og við hverju megi búast þar. Þá ræðum við um önnur helstu mál í hjólreiðum á síðustu dögum og sem eru framundan auk þess að tease-a aðeins fyrir TdF. Svo er Kwaremont spurningin á sínum stað.

    続きを読む 一部表示
    39 分
  • #18 - Bikarstigin, Jökulmílan, HFA stelpur, Þorsteinn sjóari og erlendu keppnirnar
    2022/06/07

    Átjándi þáttur eftir stutta pásu. Við förum yfir það helsta sem hefur verið í gangi, það sem er framundan og skoðum aðeins nánar uppskeruna í síðustu götuhjólamótum. Einnig er staðan tekin á landsliðsmálum og Rúnar spurður um ástæður þess að hann sé að færa fókusinn úr TT í RR.

    続きを読む 一部表示
    37 分
  • #17 Hafsteinn Ægir og nýja Lauf hjólið
    2022/04/14

    Hafsteinn Ægir Geirsson er margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum og hefur verið í fararbroddi í sportinu hér á landi síðustu tvo áratugi. Hann er jafnfram head mechanic hjá Lauf, en fyrirtækið kynnti nýtt hjól í vikunni, Seiglu. Hafsteinn hefur hjólað á því síðan í september og prófað það meira en nokkur annar. Hann fer yfir hvað er nýtt á þessu hjóli og þróun malarhjólreiða með tilliti til dekkjabreiddar og dempunar.  Hafsteinn ræðir líka nýju flokkaskiptinguna og segir okkur stutt frá þátttökunni í EM á Ítalíu í fyrra.

    続きを読む 一部表示
    37 分
  • #16 - Nýtt flokkakerfi - Með og á móti
    2022/02/21

    Fyrir um viku síðan kynnti HRÍ tillögu stjórnar fyrir komandi Hjólreiðaþing um breytt fyrirkomulag flokkakerfisins. Í grunninn stjórn leggur til að slaufa masters flokkunum og hafa frekar getuskipt flokkakerfi A-B-C flokka. Bjarni Már Gylfason mætir í þáttinn til að ræða slíkar breytingar og hvaða þýðingu það hefði. Hverjir eru kostirnir og hverjir eru gallarnir?

    続きを読む 一部表示
    54 分