エピソード

  • Flekaskil - 9. þáttur
    2026/06/08

    Opið bréf Zelenskís til Pútin.

    Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt.

    Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 5 分
  • Flekaskil - 8. þáttur
    2026/06/01

    Tuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila.

    Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson

    Tónlist: Halldór Eldjárn

    続きを読む 一部表示
    57 分
  • Flekaskil - 7. þáttur
    2026/05/25

    Það hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en Evrópu og fleira og fleira.

    続きを読む 一部表示
    44 分
  • Flekaskil - 6. þáttur
    2026/05/18

    Dagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræða um stöðu Úkraínu.

    続きを読む 一部表示
    54 分
  • Flekaskil - 5. þáttur
    2026/05/11

    Varnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og klofningi í samfélaginu og hvernig stendur hann í dag, nú þegar allir flokkar á Alþingi styðja hann og aðildina að NATO?

    Með samningnum hófst nýr kafli í sögu Íslands þar sem alþjóðamál, stórveldapólitík og íslensk fullveldisumræða fléttuðust saman á áður óþekktan hátt. Áhrif varnarsamningsins hafa verið pólitísk, efnahagsleg og samfélagsleg. Hann hefur kallað fram sterkar skoðanir um sjálfstæði Íslands, hervæðingu og stöðu landsins í alþjóðakerfinu. Hvaða áhrif hafa breytt Bandaríki á stöðu hans og okkar?

    続きを読む 一部表示
    50 分
  • Flekaskil - 4. þáttur
    2026/05/04

    Leiðir Íran-stríðið til heimskreppu?

    Innrás Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hefur alls ekki farið eins og Bandaríkjaforseti hafði væntingar til. Trump hefur brugðist hart við gagnrýni evrópskra bandamanna á stríðið og hefur lýst því yfir að 5.000 hermenn verði fluttir frá Þýskalandi. Gengið hefur á vopnabúr og hátækni loftvarnir bæði Bandaríkjamanna og samstarfsríkja þeirra við botn Miðjarðarhafs. Fjallað er um stöðuna í stríðinu og afleiðingar þess frá mörgum hliðum í þessum fjórða þætti Flekaskila.

    Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trump og Evrópu.

    続きを読む 一部表示
    48 分
  • Flekaskil - 3. þáttur
    2026/04/27

    Flekaskil innan NATO. Spenna milli Bandaríkjanna og Evrópu og staða Íslands.

    Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

    続きを読む 一部表示
    42 分
  • Flekaskil - 2. þáttur
    2026/04/20

    Úkraínu-stríðið og nýafstaðnar kosningar í Ungverjalandi.

    Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

    Mynd, hljóð og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson

    Tónlist: Halldór Eldjárn

    続きを読む 一部表示
    56 分