エピソード

  • Sölvadalur - 1. þáttur
    2025/11/15

    Í Sölvadal í Eyjafirði hefur lengst verið búið á Eyvindarstöðum, Draflastöðum og Þormóðsstöðum. Við kynnumst nánar sögu dalsins og fólksins sem þar bjó. Hvernig kom það til að heimavirkjanir voru reistar í stað þess að rafmagn frá samveitunni væri lagt í dalinn?


    Viðmælendur: Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1

    Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    42 分
  • Sölvadalur - 2. þáttur
    2025/11/22

    Tvær heimavirkjanir sáu bæjunum í Sölvadal fyrir rafmagni. Í lok júní 1995 urðu náttúruhamfarir sem höfðu mikil áhrif á líf fólksins í dalnum. Þjónustuleysi og lélegar samgöngur héldu áfram að einkenna búsetuna.


    Viðmælendur: Egill Þórólfsson, Petrea Lára Hallmannsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    40 分
  • Sölvadalur - 3. þáttur
    2025/11/29

    Við horfum enn til baka og fáum loks að vita hvaða menn á Akureyri keyptu á sínum tíma vatnsréttindin í Núpánni. En fyrst heyrum við í einu af síðustu börnunum sem ólust upp í Sölvadal.


    Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Valgerður H. Bjarnadóttir og Njáll Kristjánsson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    40 分
  • Sölvadalur - 4. þáttur
    2025/12/06

    Aftakaveður gekk yfir landið í byrjun desember 2019. Það hafði miklar afleiðingar og sérstaklega inni í Sölvadal. Miðvikudagskvöldið 11. desember barst útkall vegna slyss við Eyvindarstaðavirkjun. Björgunarsveitir víðsvegar að af landinu tóku þátt í leitinni, meðal annars félagar í hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafirði.


    Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir og Óskar Pétur Friðriksson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    38 分
  • Sölvadalur - 5. þáttur
    2025/12/13

    Bæir í Sölvadal í Eyjafirði voru aldrei tengdir rafmagni frá samveitunni. Í staðinn voru notaðar viðhaldsfrekar og ótryggar heimavirkjanir. En hvernig lítur framtíð dalsins út?


    Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Halldór Hauksson, Hrólfur Eiríksson, Jón Björn Hákonarson, Njáll Kristjánsson og Finnur Yngvi Kristinsson.


    Einnig eru flutt brot úr eldri viðtölum við Tryggva Emilsson og Lilju Karlsdóttur.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    40 分
  • Elsta land í heimi - 1. þáttur
    2026/02/06

    Í janúar hvíldu augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti var með yfirlýsingar um að hann ætlaði sér að innlima Grænland inn í Bandaríkin.


    Um viku eftir að Trump lofaði að beita ekki hervaldi til þess að taka Grænland fórum við til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir Grænlensku þjóðina?


    Umsjónarmenn eru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir


    Viðmælendur voru

    Inga Dóra Guðmundsdóttir

    Lis Lindenhann Jokumsen

    Bent Jokumsen

    Aka Hansen

    Martin Zink


    Lög sem voru notuð í þættinum

    Uummatip tusaataa - Uillut

    Aqqusernit - Nive Nielsen and the Deer Children

    Timmissat taartut - Nanook

    Tupilak - Tarrak

    Uummatima feat. Suspekt - Tarrak

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    54 分
  • Elsta land í heimi - 2. þáttur
    2026/02/13

    Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt.


    Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að reyna að skilja þessi fyrirbæri betur. Við veltum fyrir okkur blokkunum, heilbrigðiskerfinu, tónlistinni, leikhúsinu og þögninni.


    Viðmælendur voru:

    Jón Viðar Sigurðsson

    Embla Kristjánsdóttir

    Mette Marie Jensen

    Glenn Møller

    Vivi Sørensen


    Lög sem notuð voru í þættinum:

    Uummatip tusaataa - Uillut

    Akimut Ikaarneq - Uillut

    Inuuneq Nunaaq - Uillut

    Kalaallit Nunaat, Kalaallit Pigaat - Kalaallit

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    56 分
  • Elsta land í heimi - 3. þáttur
    2026/02/20

    Er ásókn Trump í Grænland það afdrifaríkasta sem komið hefur fyrir sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga?


    Við reynum að skilja samhengi sjálfstæðisbaráttunnar, afnýlenduvæðingu og samband Hans Egede og Hafmóðurinnar.


    Viðmælendur í þættinum eru

    Guðmundur (Gujo) Þorsteinsson

    Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen

    Aka Hansen



    Lög sem spiluð voru í þættinum

    Sooq - Tarrak og Peand-eL

    Uummatip tusaataa - Uillut

    QILAAT - Varna

    ANAANA - Varna

    Imigassaq - Sumé

    Qullissat=Qullissat - Sumé


    Brot úr þættinum Um Grænland frá 1976


    Lestur úr bókinni A Kayak Full of Ghosts: Eskimo Tales eftir Lawrence Millman frá 1987

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    56 分