『3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?』のカバーアート

3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?

3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?

無料で聴く

ポッドキャストの詳細を見る

Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur.

Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til dæmis geturðu fengið háa sekt ef þú borðar hjá frægum minnismerkjum, dýfir fótum í gosbrunna eða gengur í óviðeigandi skóm á gönguleiðum Cinque Terre. Einnig er mikilvægt að bera alltaf vegabréf eða önnur gild skilríki á sér.

Þátturinn varar við algengum ferðamannabrellum, svo sem „ókeypis“ armböndum, undirskriftasvindli og vasaþjófum. Einnig færðu að heyra um ýmis konar falinn kostnað sem margir gera sér ekki grein fyrir og hagnýt ferðaráð.

****
Questura – lögreglustöð

Zanzare – moskítóflugur

Eh, pazienza! – Svona er lífið (pazienza = þolinmæði)

Coperto / pane e coperto. Þjónusta til borðs / brauð og þjónusta til borðs.

Servizio incluso - þjónusta innifalin

Bancomat – hraðbanki

Tassa di soggiorno – ferðamannaskattur

Il conto, per favore – Reikninginn, takk

Ferragosto – 15. Ágúst

Chiuso per ferie – lokað vegna sumarleyfa

Climatizzato – loftkæling

Riposo – hvíldartími

Gelato – ís

La dolce vita – hið ljúfa líf


Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is

adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
まだレビューはありません